Tilhleypingakvöld - Yfirlitssýning hjá Séra Pétri

Hörku partý á laugardagskvöldið 29. nóv., hjá Séra Pétri sem er prestur hjá Óháðasöfnuðinum í Reykjavík. Partýið verur á Hagamel helming hundraðs, að hætti Péturs og er  mæting tvær í tvöþúsund.

 

Pétur

 

 

Yfirlitssýning = þegar Pétur býður stúlkum heim á Hagamel 50, sem eru á lausu og lætur Guðsgeldingagengið líta á þær.

Ég fór einu sinni í svona partý í denn eða 1992. Pétur reyndi og reyndi að koma mér til við einn af gestum hans en ég var og er erfið viðureignar. Kannski ert þú auðveldar viðureignar en ég? Pétur hvetur ykkur, sem eruð á lausu, að mæta.

Ég lofaði Pétri að auglýsa Pétrísku-íslensku Orðabókina hans. Þið sem hafið áhuga að kaupa Orðabókina en getið ekki mætt í tilhleypingapartýið eða þurfið þess ekki,  getið hringt í Pétur . Síminn er 5522652.

Pétrísk Orðabók Pétríska Orðabókin árituð

 

Ég verð nú að setja inn fáein orð úr Pétrísku-íslensku Orðabókinni en ég mun velja orðin svo það líði ekki yfir ykkur.

Eitt sinn kom Pétur í heimsókn til Vopnafjarðar og var í heimsókn hjá vinum okkar sameiginlegum á leið í Loðmundafjörð. Hann hringdi en ég var ekki heima. Klukkan tíu kom ég  heim og ætlaði að drífa mig í rúmið því erfið vinna beið daginn eftir og ég með mígreni. Þá hafði Pétur hringt. Ég fór að hitta Pétur og vini mína. Hann sá að ég var slöpp og ég sagði honum að ég væri með mígreni. Þá spurði hann mig hvort það væri „Kommúnistafundur í kjallaranum hjá mér?" Ég hváði en fattaði strax hvað hann átti við. Ég var nú ekkert að svara þessu hvorki játandi eða neitandi, fannst pilti ekkert koma það við en hann hitti nú samt naglann á höfuðið. Grin

Kommúnistafundur í kjallaranum  = tíðarblæðingar sbr. RÓSA FRÆNKA Í HEIMSÓKN Grin

Að þykkna upp = verða ólétt; (Pabbi minn segir að konurnar hafi verið bólusettar. Rósa) Grin

Afleggjari = maður í megrun

Andlitsát = sviðaveisla

Auðkúla = vömb á karlmönnum

Áleggsbrauð = brauð þar sem presturinn er með æðardúntekju, en æðakollurnar liggja á eggjunum og dúnninn er tíndur úr hreiðrinu

Ástarhöldur = spikfellingar á hliðum manna (SH: velmegunarvöðvar, auðkúla, kúlulegur)

Bálreið = slökkviliðsbifreið

Bjórúlfar = Björgólfsfeðgar í Samson, þar sem þeir fóru sem úlfar í hjörð Sóla Sig. Á vormisseri 2003 í - Búnaðarþingi - honum gersamlega að óvörum

Blindfyllerísmótið í Alkalæk = Bindindismótið í Galtalæk, haldið á frídegi verslunarmanna

Dómkirkja = kona mjög  væn að vallarsýn (þar sem líkaminn á að vera musteri eins og segir í Biblíunni) Grin Lýsing á mér- Rósa Grin

Eiturblys = sígaretta (SH: Hvíti dauði)

Endurholdgun = að fita aftur eftir megrun

Fálkaungi = barn fálkaorðuhafa

Feimið hvítkál = rauðkál

Fingrafæði = pinnamatur. Það tekur því varla að mæta í slík boð þar sem maturinn er það rýr að alveg eins er hægt að stanga úr tönnunum í staðinn (SH: tannstönglakviðfylli)

Fitufátæktarmatur = diet, megrunarmatur

Grautur og gras = súpa og salat

Hálffress = rauðsokka eða femínisti

Hátíðarblys = vindill

Hrökkbrauð = embætti farprests

Kalli og co = þeir sem tilheyra alríkiskirkjunni, þjóðkirkjunni þar sem Karl er biskup

Kjaftakerling = ökuriti í rútu og vöruflutningabifreið sem skráir ökuhraða og vinnutíma

Kjaftasaga = Útvarp Saga, eftir að hún varð talmálsstöð á vormisseri 2002

Krabbameinshvati = ljósabekkur

Kransæðakítti = majones o.þ.h.l.

Kreppukort = greiðslukort (SH: Eyðslukort)

Krítarkort = póstkort frá eyjunni Krít

Kroppakrem = body lotion

Kúlukýlingarkall = golfleikari

Kúlusukk = Perlan, þar sem sukkað var með peninga við byggingu hennar

Kviðlingur = ófætt barn (SH: bumbubúi)

Maggi dóni = Hamborgarstaðurinn McDonalds

Mammonsfræði = viðskiptafræði

Marteinsmaður = Lútherstrúarmaður

Melakleppur = Háskóli Íslands

Naglhreinsa = fótaaðgerðakona við störf

Nýheiðindómur = nýöld

O.A. = ofát og aukakíló

Pottormar = spagettí

Randabrauð = meðlæti, einkum kökur með rjóma

Sendiherra = stjórnmálamaður sem orðin er hættulegur eða óþægilegur stjórnarflokkum og er því sendur erlendis

Skeifuskoltur = maður sem er sífellt fýldur á svipinn

Skófluskattur = kirkjugarðsgjald

Skráveifa = meðhjálpari í kirkju sem dreifir messuskrá

Skröltsskór = inniskór starfsfólks heilbrigðisstofnana, sem auka á skarkala á göngum stofnananna

Stelpugöngin = veggöngin úr Siglufirði yfir í Héðinsfjörð, þar sem Strákagöngin eru hinu megin yfir í Fljótin

Svampbotn = rass á konu sem er - væn að vallarsýn (SH: Bústýrubotn, ráðskonurass) Grin Það hlýtur að vera að Pétur Cool Whistling Cool sé virkilega skotin í okkur sem erum frjálslegar vaxnar miðað við orðabókina hans - Rósa. Grin

Svartbaunaseyði = kaffi

Svipting = gifting (SH: sjálfsforræðissvipting)

Túristatrú = Ásatrú, þar sem erlendir ferðamenn koma til Íslands til að kynna sér hana

Uxahryggir = t-beina steik

Vangefin = kona, sem ekki hefur verið gefin manni

Veiðivatn = ilmvatn

Vitlausa vikan = síðasta vikan fyrir jól

Vínarbrauð = brauð S.Á.Á. - prestsins

Votti óhófi = Votti Jehóvi, þar sem heimsóknir þeirra verða að ofsóknum

Þurrkaðir hringormar = cheerios

Ævisaga = lygasaga sem einhver gengst við

Örendur = sáralitlar endur

Öskureið = ruslabifreið, sorpbifreið

Sjá nánar hjá Guðrúnu fræ. bloggvinkonu minni: http://goodster.blog.is

Færslurnar heita: Nú nálgast hið árlega.... Skrifað 26/11. 2008 og Að gefnu tilefni.. skrifað 24/1 2008.

Góða skemmtun að lesa þessa vitleysu. Grin 

Guð veri með ykkur öllum bæði ykkur sem eruð á lausu eða orðið fyrir sjálfsforræðissviptingu. Grin

Kær kveðja/Rósa


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Flower

Flower, 27.11.2008 kl. 23:57

2 identicon

Sæl Rósa.

Hann er með munninn fyrir neðan nefið og heilann á réttum stað andsælis !

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 28.11.2008 kl. 00:27

3 Smámynd: Linda

Linda, 28.11.2008 kl. 04:43

4 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Sæl Rósa!

Ég þekki séra Pétur frá fornu fari, og kannast við mörg þessara orða. Ætli ég sé þá ekki fornvinur?

Skemtilegt hjá þér að auglysa þetta.

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 28.11.2008 kl. 11:42

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég skellihló þetta var svo fyndið. Góða helgi Rósa mín

Kristín Katla Árnadóttir, 28.11.2008 kl. 12:26

6 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð og takk fyrir innlitið.

Hann Pétur vinnu sko að góðum málefnum eða finnst ykkur það ekki? Vill hjálpa okkur sem erum að mygla.

Erlingur minn, já hann Pétur er virkilega fyndinn. Þú ættir að lesa bókina.  

Ruslana mín, já, mikill orðasmiður er hann Pétur. Hlakka til að heyra í þér.

Flower mín, takk fyrir broskarlinn, færslan hefur hitt í mark. Veitir ekki af smá upplyftingu nú á erfiðleikatímum.

Þórarinn minn, rétt hjá þér.

Linda mín, takk fyrir alla broskarlana og ullakarlinn. Drífðu þig í partýið.

Svandís mín, þið Linda ættuð nú bara að mæta og líta á úrvalið - yfirlitssýninguna hjá Pétri.

Halldóra mín, sennilega orðin fornvinur. Við erum víst ekki lengur unglömb þó svo að við séum ungar í anda.

Katla mín, mörg af þessum orðum eru hreinasta snilld.

Góða helgi og góða veiði þið sem ætlið að heimsækja Pétur. 

Megi almáttugur Guð blessa ykkur.

Kær kveðja/Rósa 

Rósa Aðalsteinsdóttir, 28.11.2008 kl. 13:06

7 Smámynd: Kristín Ketilsdóttir

Sæl Rósa mín þetta var mikið gaman hahahaha! mikið gott að skellihlægja!

takk fyrir þetta

Kristín Ketilsdóttir, 28.11.2008 kl. 13:43

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Skemmtileg ertu skottið mitt. Takk fyrir líflega og skemmtilega færslu. Ég þarf ekki annan mann og er reyndar löngu vaxin upp úr því að vilja deita, nema sama manninn þá bara   hafðu það gott elsku Rósin mín og njóttu helgarinnar.

Ásdís Sigurðardóttir, 28.11.2008 kl. 14:40

9 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sælar stelpur og takk fyrir innlitið.

Kristín mín, það er svo hollt fyrir okkur að hlægja og auðvelt að hlægja af þessari vitleysu hjá honum Pétri. skil ekki allt þetta hugmyndaflug sem strákurinn hefur. Vona að það gangi vel hjá honum í tilhleypingum annað kvöld. Ég ætla ekki að vera þar heldur hér heima á Vopnafirði.

Ásdís mín,  haltu áfram að vera gift Bjarna þínum og vertu dugleg að deita við hann. 

Megi almáttugur Guð vera með ykkur og gefa ykkur góða helgi og bjarta framtíð.

Kær kveðja/Rósa 

Rósa Aðalsteinsdóttir, 28.11.2008 kl. 21:55

10 identicon

 Æi, það er gott að geta helgið ennþá.

Hafði gleymt því.

Sigrún Jóna (IP-tala skráð) 28.11.2008 kl. 23:32

11 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Takk  fyrir þetta

Sigurður Þórðarson, 29.11.2008 kl. 00:45

12 Smámynd: Óskar Arnórsson

Þetta er alveg frábært. Algjör snilld! Ég kópera þetta og dreifi...

Óskar Arnórsson, 29.11.2008 kl. 00:57

13 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég lá bara í krampa, Rósa mín, þegar ég var kominn miðja leið í lestrinum – hafði þó lesið orðabókina fyrir mörgum árum, en hann er hreint kostulegur, og mörgu hefur hann aukið við fyrri útgáfur. Pottormar = spagettí, og þurrkaðir hringormar = cheerios, og vitlausa vikan = síðasta vikan fyrir jól – á þessum þarf ég að fræða börnin mín og mörgum fleiri.

Jón Valur Jensson, 29.11.2008 kl. 02:15

14 Smámynd: Brynja skordal

 þekki nú vel til Péturs enda minn prestur í minni kirkju svo oft hef ég fengið faðmlag og koss á kinn frá þessum eðal manni á líka hans orðabækur sem eru snildar efni og gaman að pæla í þeim alltaf gaman að vera í messu hjá honum krakkarnir fá sko sinn skammt líka og hlakka alltaf til að mæta í kirkju hafðu ljúfa helgi elskuleg og takk fyrir þetta

Brynja skordal, 29.11.2008 kl. 04:38

15 Smámynd: Úlfar Þór Birgisson Aspar

Ég verð að segja pass,ég er enn eins og þú orðaðir svo vel einusinni Rósa svo styggur.Önnur góð kona sagði eitt sinn við mig að ára hreinlega hrópaði burt með ykkur og látið mig einann..Heheheheh góður pistill samt Rósa mín.

Úlfar Þór Birgisson Aspar, 29.11.2008 kl. 10:14

16 Smámynd: Úlfar Þór Birgisson Aspar

Sorry ára mín átti þetta auðvitað að vera.

Úlfar Þór Birgisson Aspar, 29.11.2008 kl. 10:14

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Rósa mín fyrir þessa upprifjun, ég fékk einhverntíman í hendurnar smárit, ljósritað minnir mig, með Pétrískunni, og finnst þetta alveg frábært framtak hjá honum.  Hvar er hægt að nálgast bókina ?  Ég væri alveg til í að kaupa hana.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.11.2008 kl. 11:42

18 Smámynd: Jóhanna Sigrún Jónsdóttir

Pétur er snillingur.. myndi kjósa hann á þing ef hann væri í boði. 

Kommúnistakjallarakveðja

Jóhanna Sigrún Jónsdóttir, 29.11.2008 kl. 12:34

19 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð.

Takk fyrir innlitið.

Sigrún mín, það er svo nauðsynlegt að geta hlegið og það var og er nú tilgangurinn hjá Pétri með þessari bók.

Siggi minn, sömuleiðis.

Óskar minn, þetta er algjör snilld hjá Pétri. Gaman af þessu bulli.

Jón minn, gott að þú hefur skemmt þér, ekki veitir af að nú þegar við Íslendingar eigum í miklum vanda. En við bæði vitum að Guð almáttugur mun snúa við högum þjóðar okkar.

Brynja mín, nú fatta ég eina færsluna frá þér þegar þú sagðist hafa farið í kirkju og þú skrifaðir aðeins um samveruna þar. Mér fannst samveran í kirkjunni þinni svo jákvætt. Kæmi ekki á óvart að Pétur vinur okkar hafi verið presturinn en sem betur fer eru margir líflegir prestar. Gaman að fara í Guðshús þar sem ríkir gleði og kærleikur.

Úlli minn, Pétur mun hafa svona partý að ári, kannski fyrr ef eftirspurnin eykst. Þá kannski skellir þú þér í Hagamelinn. Frænkur mínar vilja endilega að ég fari á einkamál.is en ég afþakkaði. Ég er nefnilega stygg líka þó sumir haldi að ég sé að breima með þessari færslu.

Ásthildur mín,  þú mátt hringja í Pétur, síminn er 5522652. Endilega fáðu bókina. Flott að lesa úr bókinni í góðra vinahópi. Get lofað þér því að enginn verður með Skeifuskolt = maður sem er sífellt fýldur á svipinn.

Hanna mín, þú segir nokkuð með að hvetja Pétur á þing. Það yrði þá líflegra á þingi. Enginn með skeifuskolt. Rósa frænka biður að heilsa þér.

Góða helgi. 

Guð blessi ykkur og varðveiti. 

Kær kveðja/Rósa 

Rósa Aðalsteinsdóttir, 29.11.2008 kl. 15:50

20 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl öll.

Nú er Pétur á fullu að undirbúa tilhleypingapartýið sitt.

Alkulskall/-kerling = kerfiskarl af verstu gerð

Apaeista = kiwíávöxtur

Aumingjabrauð = franskbrauð (SH: Hvíti dauði, krabbameinsbrauð, þarmastíflubrauð)

Blaðka = kvenkyns blaðamaður

Bolvindur = svitalykt, þar sem svo sterk lykt kemur af bol viðkomandi manns að það líkist helst vindi

Botnfrosinn og fannbarinn = kerfiskarl sem hefur ekki minnsta vott af kímnigáfu 

GÓÐA SKEMMTUN.

Kær kveðja/Rósa 

Rósa Aðalsteinsdóttir, 29.11.2008 kl. 16:16

23 Smámynd: Dísa Dóra

Pétur er greinilega ávalt samur við sig og uppátektasamur jafnt nú og þegar við vorum smándar að alast upp í sömu sveit   Hef nú í mörg ár (ehemm sennilega reiknast það í áratugum núorðið) ætlað mér að versla eins og eina petríska en aldrei orðið af því.  Ætti kannski að láta verða af því núna

Dísa Dóra, 29.11.2008 kl. 20:47

24 Smámynd: Sigríður Ásdís Karlsdóttir

Þú ert Rós Rósa min.     Frábært hjá þér kæra vina. Guð veri með þér.  Kv Sirrý

Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 30.11.2008 kl. 00:29

25 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð

Takk fyrir innlitið.

Gulli minn, ég er vangefin =  kona, sem ekki hefur verið gefin manni. Þetta var ég búin að segja þér frá. Bý ásamt föður mínum sem er 83 ára. Sniðugur ertu með að fatta að Pétur er ekki að gera þetta eingöngu vegna vináttu og tryggðar.

Dísa Dóra mín, gaman að vita að þið eruð gamlir sveitungar. Nú ættir þú að drífa þig í að hringja í séra Pétur og fá þér Pétríska - Orðabók og það áritaða. Gætir spurt hann í leiðinni hvernig yfirlitssýningin gekk.

Sirrý mín, takk fyrir hlý orð. Verum í bandi þó langt sé á milli okkar, Norge-Island.

Ætli sé fjör hjá Séra Pétri núna???  

Guð gefi ykkur góða helgi og bjarta framtíð.

Kær kveðja/Rósa 

Rósa Aðalsteinsdóttir, 30.11.2008 kl. 00:47

26 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Rósa Aðalsteinsdóttir, 30.11.2008 kl. 00:50

27 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Rósa Aðalsteinsdóttir, 30.11.2008 kl. 00:50

28 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Rósa Aðalsteinsdóttir, 30.11.2008 kl. 00:52

29 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Rósa Aðalsteinsdóttir, 30.11.2008 kl. 00:53

30 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Rósa mín, þetta er frábært. Guð veri með þér

Kristín Gunnarsdóttir, 30.11.2008 kl. 10:22

31 Smámynd: Birgirsm

Halló Rósa

Í minni sveit hleypa menn ekki til fyrr en á aðfangadag HAHAHA, gott framtak hjá þessum Pétri

Kær kveðja til þín Rósa.

Birgirsm, 30.11.2008 kl. 12:50

32 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð

Takk fyrir innlitið.

Kristín mín, sammála þetta er frábært.

Birgir minn, í minni sveit eru tilhleypingar á milli jóla og nýárs. 

Megi almáttugur Guð vera með ykkur báðum.

Kær kveðja/Rósa 

Rósa Aðalsteinsdóttir, 30.11.2008 kl. 16:15

33 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og ljúfar kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 30.11.2008 kl. 23:21

34 identicon

Sæl Rósa.

Svo mörg eru orðin þau.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 04:30

35 Smámynd: Helena Leifsdóttir

Heil og Sæl Rósa mín.
Til hamingju með fullveldisdaginn 1.des.
Þessi færsla þín er frábær, ótrúlega skemmtileg, full af gleði. Mér finnst þetta góð hugmynd með deitkvöld fyrir einhleypa.
Á Þingvöllum var sérstakur blettur helgaður einhleypum til forna, svipað og í Kotinu í gamla daga var blettur fyrir einhleypa og kveiknaði mörg ástin þar og lifir enn. Í dag virðist þetta vera feimnismál meðal trúaðra að finna sinn ástarprófíl til lífstíðar. En eins og þú veist eru ótrúlega margir á aldrinum 30-50-60 ógiftir segja mér vinkonur mínar hér á mölinni og hafa oft verið stórar pælingar um hverskonar kvöld / dag ætti að kalla til. Kannski hefur Pétur mikli svar við þessu.

Annars finnst mér orðið Dómkirkja=kona mjög  væn að vallarsýn ( heillandi orð)

Guð blessi þig ídag, hér verða vöfflur með rjóma í tilefni dagsins.

Helena

Helena Leifsdóttir, 1.12.2008 kl. 11:48

36 Smámynd: Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir

Haha alger snilld, mikil speki hér á ferð, einhvern tíman heyrði ég hann segja að öryrki- væri sá sem yrkir hratt, fannst það fyndið.

Ertu ekki í jólastuði Rósa superwomen, ég er í svaka stuði, hef ekki haft mikinn tíma fyrir blogg, en það kemur í rólegheitum, hvað ætli Pétur kalli að vera upptekinn?

Sjáumst elsku besta! þín bev

Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir, 2.12.2008 kl. 16:43

37 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Snilld Rósa mín! Ég var reyndar löngu búinn að lesa þetta, en þú veist hvað ég er duglegur að gera athugasemdir hjá öðrum .... sorrý litla/stóra systir ... 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 2.12.2008 kl. 21:21

38 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Frábær færsla hjá þér! sniðugt hjá Pétri að vera með svona kvöld, þá þarf fólk ekki að fara á bari og detta í´ða til að kynnast einhverjum

Guðrún Sæmundsdóttir, 2.12.2008 kl. 21:32

39 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

Ótrúlega skemmtileg lesning. Pétur er virkilega skemmtilegur kall

Svala Erlendsdóttir, 2.12.2008 kl. 22:34

40 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð.

Takk fyrir innlitið og skemmtileg innlegg.

Linda mín Linnet, takk fyrir.

Þórarinn minn, einmitt.

Helena mín, auðvita á að hafa samkomu fyrir Guðsgeldinga. Skilgreining Péturs á Dómkirkju er virkilega fyndin.

Bryndís mín, ef ég kynni nú að yrkja þó það væri í rólegheitunum væri ég ánægð. Er komin í jólagírinn.

Guðsteinn minn, þú ert mjög duglegur að skrifa athugasemdir hjá öðrum.

Guðrún mín, Pétur er sniðugur og hann hefur náð að para saman og er hreykinn af.

Svala mín, já Pétur er skemmtilegur karl.

Einar Ingvi, velkominn á síðuna hjá mér. Þú þarft endilega að fá þér eintak og skemmta þér og fjölskyldunni yfir þessu bulli.

Nína mín, Pétur er hinn kátasti í góðra vina hópi. Hann er í því að reyna að redda Guðsgeldingum en gleymir sjálfum sér.  

Guð veri með ykkur öllum.

Kær kveðja/Rósa 

Rósa Aðalsteinsdóttir, 3.12.2008 kl. 23:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband