Vopnafjörður - Nafli Alheimsins

Vopnafjörður

 

Sæl og blessuð

Mikill uppgangur á Vopnafirði sem er Nafli alheimsins. Smile (Vopnfirskur brandari)

Við verðum að trúa að allar þessar frábæru framkvæmdir verði til góðs og að Guð gefi okkur nóg af afla úr sjó. Ekki veitir af nú þegar þjóðin er að ganga í gegnum erfiðleika.

Lundey NS 14

1Davíðssálmur.

"Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta.

Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta.

Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns.

Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig.

Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur.

Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi." Sálmur 23.

Nú þegar þjóðin á í erfiðleikum þá skulum við biðja Drottinn um að vera með okkur á meðan við förum um dimman dal. Ég trúi því að við verðum bænheyrð og að Guð muni snúa við högum okkar.

Hvítasunnukirkjan fokhelt
Hvítasunnukirkjan á Vopnafirði 1955

Seint á föstudagskvöld fáum við í Hvítasunnukirkjunni heimsókn frá trúsystkinum okkar í Keflavík. Við verðum með samkomur á laugardagsmorgunn kl 10; laugardagskvöld kl: 20 og á sunnudagsmorgunn kl 11 í Hvítasunnukirkjunni Fagrahjalla 6. Þú ert velkominn.

Guð blessi ykkur öll

Kær kveðja/Rósa


mbl.is Mjölsverksmiðjan á Vopnafirði á áætlun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Guð gefi ykkur öllum góðan dag. Fékk þetta bréf í tölvupósti.

hvet alla sem eru á móti því að þjóðin eigi að borga Icesave að fara inná www.kjosa.is og taka þátt í áskorun til forsetans.

Guð veri með ykkur

Kær kveðja/Rósa

     

      Háttvirti kjósandi.

 

      Þúsundir hafa tekið undir með okkur á www.kjosa.is síðasta sólarhringinn.

 

      Nú eru síðustu forvöð að hvetja enn fleiri.

 

      Í dag, mánudag kl. 13:00, verður prentaður út listinn yfir þá sem skorað

      hafa á forsetann. Áskorunin verður síðan afhent forsetanum síðar um daginn,

      eða kl. 15.

 

      Tökum málið í okkar hendur! Látum aðra vita af áskoruninni.

  

      Baráttukveðjur,

 

      Ábyrgðarmenn,

      Hjörtur Hjartarson

      Sigurlaug Þ. Ragnarsdóttir

      Þorvaldur Óttar Guðlaugsson

 

      E. S.

 

      Þau sem vilja geta gert margt fleira, til dæmis: Á bloggsíðum má benda á

      www.kjosa.is; á www.kjosa.is er áhrifaríkt tól sem heitir "Senda á vini".

    

Rósa Aðalsteinsdóttir, 31.8.2009 kl. 06:59

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sæl elskuleg. Ég nennti ekki að lesa blogg í dag, var að stússast hér innan dyra í blíðunni.  Það er fallegt kvöldveðrið núna og yndislegt að horfa yfir Hellisheiði.  Kærleikur til þín og þinna.

Ásdís Sigurðardóttir, 31.8.2009 kl. 20:56

3 Smámynd: Sigríður  Ágústa Þórólfsdóttir

Sæl Rósa mín,langt síðan þú hefur verið hér og enn lengra síðan ég var síðast,ég vona að þú eigir góða helgi með Keflvíkingunum,ég er að gera mig klára að taka á móti börnum og barnabörnum á ljósahelginni,hafðu það alltaf sem best vinkona kærleiksknús á þig

Sigríður Ágústa Þórólfsdóttir, 1.9.2009 kl. 00:27

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gott að heyra góðar fréttir Rósa mín.  Og þessar báðar eru þannig.  Knús og eigðu góðan dag mín kæra. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.9.2009 kl. 08:49

5 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 1.9.2009 kl. 20:25

6 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heil og sæl Rósa, það er gott að heyra jákvæðar fréttir og þið vopnfirðingar eruð í góðum málum hvað atvinnumál snertir sýnist mér. Gaman að sjá þessa gömlu mynd af Hvítasunnukirkjuni í byggingu frá árinu 1955.

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 1.9.2009 kl. 22:42

7 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Guðsteinn Haukur Barkarson, 2.9.2009 kl. 11:39

8 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Guð gefi ykkur öllum góðan dag.

Takk fyrir innlitið.

Ásdís mín, gott að heyra. Við eigum eitt sameiginlegt það er að við erum með Hellisheiði í nágrenni við okkur  Þessir heiðarvegir eru mjög ólíkir þó þeir beri sama heiti.

Sigga mín, já það verður gamna hjá okkur um helgina. Vona að Ljósahátíðin verði vel lukkuð hjá ykkur.

Ásthildur mín, það er uppgangur hér og það er jákvætt núna þegar þjóðin gengur í gegnum djúpan dimman dal.

Birna mín, takk fyrir hjartað.

Simmi minn, já það er nóg að gera hjá Gísla syni þínum og öllum í Stóru Milljón. Hér eru líka fullt af aðkomufólki sem er að vinna við byggingu á húsi sem er byggt ofaná tankana sem voru fluttir með pramma frá Reykjavík til Vopnafjarðar í sumar. Vonum að það gangi vel áfram. Ekki veitir af gjaldeyristekjum fyrir land og þjóð.

Guðsteinn minn, takk fyrir hjartað. Nú ert þú búinn að koma á Vopnafjörð sem er Nafli Alheimsins. Þú þarft að koma aftur og stoppa lengur. Ég þarf að sýna ykkur svo margar náttúruperlur sem við eigum hér á Vopnafirði.

Hlakka til að Keflvíkingar heimsæki okkur hér á hjara veraldar.

Guð blessi ykkur og varðveiti

Megi almáttugur Guð miskunna íslenskri þjóð.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 2.9.2009 kl. 15:42

9 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og ljúfar kveðjur :)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 5.9.2009 kl. 15:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband