Skírdagur

 

Skírdagur

Jesús Í Betaníu

Þegar Jesús hafði lokið öllum þessum orðum, sagði hann við lærisveina sína: "Þér vitið, að eftir tvo daga eru páskar. Þá verður Mannssonurinn framseldur til krossfestingar." Æðstu prestarnir og öldungar lýðsins söfnuðust nú saman í höll æðsta prestsins, er Kaífas hét, og réðu með sér að handsama Jesú með svikum og taka hann af lífi. En þeir sögðu: "Ekki á hátíðinni, annars verður uppþot með lýðnum." En Jesús var í Betaníu, í húsi Símonar líkþráa. Kom þá til hans kona og hafði alabastursbuðk með dýrum smyrslum og hellti yfir höfuð honum, þar sem hann sat að borði. Við þessa sjón urðu lærisveinarnir gramir og sögðu: "Til hvers er þessi sóun? Þetta hefði mátt selja dýru verði og gefa fátækum." Jesús varð þess vís og sagði við þá: "Hvað eruð þér að angra konuna? Gott verk gjörði hún mér. Fátæka hafið þér jafnan hjá yður, en mig hafið þér ekki ávallt. Þegar hún hellti þessum smyrslum yfir líkama minn, var hún að búa mig til greftrunar. Sannlega segi ég yður: Hvar sem fagnaðarerindi þetta verður flutt, um heim allan, mun þess og getið verða, sem hún gjörði, til minningar um hana."

Júdas fékk 30 silfurpeninga fyrir að svíkja Jesú                      Silfurpeningarnir 30

Þá fór einn þeirra tólf, Júdas Ískaríot að nafni, til æðstu prestanna og sagði: "Hvað viljið þér gefa mér fyrir að framselja yður Jesú?" En þeir greiddu honum þrjátíu silfurpeninga. Upp frá þessu leitaði hann færis að framselja hann.

Loftstofan
Loftstofan
1992

Síðasta kvöldmáltíðin:

„Á fyrsta degi ósýrðu brauðanna komu lærisveinarnir til Jesú og sögðu: ,,Hvar vilt þú, að vér búum þér páskamáltíðina?" Hann mælti: ,,Farið til ákveðins manns í borginni, og segið við hann: ,Meistarinn segir: Minn tími er í nánd, hjá þér vil ég halda páska með lærisveinum mínum. „Lærisveinarnir gjörðu sem Jesús bauð þeim og bjuggu til páskamáltíðar. Um kvöldið sat hann til borðs með þeim tólf. Og er þeir mötuðust, sagði hann: ,,Sannlega segi ég yður: Einn af yður mun svíkja mig." Þeir urðu mjög hryggir og sögðu við hann, einn af öðrum: ,,Ekki er það ég, herra?" Hann svaraði þeim: ,,Sá sem dýfði hendi í fatið með mér, mun svíkja mig. Mannssonurinn fer að sönnu héðan, svo sem um hann er ritað, en vei þeim manni, sem því veldur, að Mannssonurinn verður framseldur. Betra væri þeim manni að hafa aldrei fæðst." En Júdas, sem sveik hann, sagði: ,,Rabbí, ekki er það ég?" Jesús svaraði: ,,Þú sagðir það."

Kvöldmáltíðin 2      Síðasta kvöldmáltíðin Leonardo da Vinci (1452 1519)

Heilög kvöldmáltíð:

Þá er þeir mötuðust, tók Jesús brauð, þakkaði Guði, braut það og gaf lærisveinunum og sagði: ,,Takið og etið, þetta er líkami minn." Og hann tók kaleik, gjörði þakkir, gaf þeim og sagði: ,,Drekkið allir hér af. Þetta er blóð mitt, blóð sáttmálans, úthellt fyrir marga til fyrirgefningar synda. Ég segi yður: Héðan í frá mun ég eigi drekka af þessum vínviðar ávexti til þess dags, er ég drekk hann nýjan með yður í ríki föður míns." Þegar þeir höfðu sungið lofsönginn, fóru þeir til Olíufjallsins.

Júdas ráðgerir að svíkja Jesú

Afneitun sögð fyrir:

Þá segir Jesús við þá: ,,Á þessari nóttu munuð þér allir hneykslast á mér, því að ritað er: ,Ég mun slá hirðinn, og sauðir hjarðarinnar munu tvístrast.` En eftir að ég er upp risinn, mun ég fara á undan yður til Galíleu." Þá segir Pétur: ,,Þótt allir hneykslist á þér, skal ég aldrei hneykslast." Jesús sagði við hann: ,,Sannlega segi ég þér: Á þessari nóttu, áður en hani galar, muntu þrisvar afneita mér." Pétur svarar: ,,Þótt ég ætti að deyja með þér, þá mun ég aldrei afneita þér." Eins töluðu allir lærisveinarnir.

Jesús í garðinu
    

Getsemane:

Þá kemur Jesús með þeim til staðar, er heitir Getsemane, og hann segir við lærisveinana: ,,Setjist hér, meðan ég fer og biðst fyrir þarna." Hann tók með sér þá Pétur og báða sonu Sebedeusar. Og nú setti að honum hryggð og angist. Hann segir við þá: ,,Sál mín er hrygg allt til dauða. Bíðið hér og vakið með mér."Þá gekk hann lítið eitt áfram, féll fram á ásjónu sína, baðst fyrir og sagði: ,,Faðir minn, ef verða má, þá fari þessi kaleikur fram hjá mér. Þó ekki sem ég vil, heldur sem þú vilt."

 Engillinn með bikarinn 2                         Engillinn með bikarinn

 Hann kemur aftur til lærisveinanna og finnur þá sofandi. Þá sagði hann við Pétur: ,,Þér gátuð þá ekki vakað með mér eina stund? Vakið og biðjið, að þér fallið ekki í freistni. Andinn er reiðubúinn, en holdið veikt." Aftur vék hann brott annað sinn og bað: ,,Faðir minn, ef eigi verður hjá því komist, að ég drekki þennan kaleik, þá verði þinn vilji." Þegar hann kom aftur, fann hann þá enn sofandi, því drungi var á augum þeirra. Þá fór hann enn frá þeim og baðst fyrir þriðja „ sinn með sömu orðum og fyrr. Og hann kom til lærisveinanna og sagði við þá: ,,Sofið þér enn og hvílist? Sjá, stundin er komin og Mannssonurinn er framseldur í hendur syndugra manna. Standið upp, förum! Í nánd er sá, er mig svíkur."

Tekin höndum:

Meðan hann var enn að tala, kom Júdas, einn þeirra tólf, og með honum mikill flokkur frá æðstu prestunum og öldungum lýðsins, og höfðu þeir sverð og barefli. Svikarinn hafði sagt þeim þetta til marks: ,,Sá sem ég kyssi, hann er það. Takið hann höndum." Hann gekk beint að Jesú og sagði: ,,Heill, rabbí!`` og kyssti hann. Jesús sagði við hann: ,,Vinur, hví ertu hér"
Júdas sveik Jesú

Þá komu hinir, lögðu hendur á Jesú og tóku hann. Einn þeirra, sem með Jesú voru, greip til sverðs og brá því, hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum eyrað. Jesús sagði við hann: ,,Slíðra sverð þitt! Allir, sem sverði bregða, munu fyrir sverði falla. Hyggur þú, að ég geti ekki beðið föður minn að senda mér nú meira en tólf sveitir engla? Hvernig ættu þá ritningarnar að rætast, sem segja, að þetta eigi svo að verða?" Á þeirri stundu sagði Jesús við flokkinn: ,,Eruð þér að fara að mér með sverðum og bareflum eins og gegn ræningja til að handtaka mig? Daglega sat ég í helgidóminum og kenndi, og þér tókuð mig ekki höndum. En allt verður þetta til þess, að ritningar spámannanna rætist." Þá yfirgáfu hann lærisveinarnir allir og flýðu.

Ég elska Jesú og Jesús elskar mig

Fyrir ráðinu:

Þeir sem tóku Jesú höndum, færðu hann til Kaífasar, æðsta prests, en þar voru saman komnir fræðimennirnir og öldungarnir. Pétur fylgdi honum álengdar, allt að garði æðsta prestsins. Þar gekk hann inn og settist hjá þjónunum til að sjá, hver yrði endir á. Æðstu prestarnir og allt ráðið leituðu ljúgvitnis gegn Jesú til að geta líflátið hann, en fundu ekkert, þótt margir ljúgvottar kæmu. Loks komu tveir og sögðu: ,,Þessi maður sagði: „Ég get brotið niður musteri Guðs og reist það aftur á þrem dögum." Þá stóð æðsti presturinn upp og sagði: ,,Svarar þú því engu, sem þessir vitna gegn þér?" En Jesús þagði. Þá sagði æðsti presturinn við hann: ,,Ég særi þig við lifandi Guð, segðu oss: Ertu Kristur, sonur Guðs?" Jesús svarar honum: ,,Þú sagðir það. En ég segi yður: Upp frá þessu munuð þér sjá Mannssoninn sitja til hægri handar máttarins og koma á skýjum himins." Þá reif æðsti presturinn klæði sín og sagði: ,,Hann guðlastar, hvað þurfum vér nú framar votta við? Þér heyrðuð guðlastið. Hvað líst yður?"  Þeir svöruðu: ,,Hann er dauðasekur." Og þeir hræktu í andlit honum og slógu hann með hnefunum, en aðrir börðu hann með stöfum og sögðu: ,,Spáðu nú, Kristur, hver var að slá þig?"

Pétur afneitar Jesú

Pétur afneitar:

En Pétur sat úti í garðinum. Þar kom að honum þerna ein og sagði: ,,Þú varst líka með Jesú frá Galíleu." Því neitaði hann svo allir heyrðu og sagði: ,,Ekki veit ég, hvað þú ert að fara." Hann gekk út í fordyrið. Þar sá hann önnur þerna og sagði við þá, sem þar voru: ,,Þessi var með Jesú frá Nasaret." En hann neitaði sem áður og sór þess eið, að hann þekkti ekki þann mann. Litlu síðar komu þeir, er þar stóðu, og sögðu við Pétur: ,,Víst ertu líka einn af þeim, enda segir málfæri þitt til þín." En hann sór og sárt við lagði, að hann þekkti ekki manninn. Um leið gól hani. Og Pétur minntist þess, er Jesús hafði mælt: ,,Áður en hani galar, muntu þrisvar afneita mér."  Og hann gekk út og grét beisklega." Matt. 26: 17.- 74

Endilega kíkið á myndband um "Síðasta kvöldmáltíðin og bænastundin í Getsemane garðinum:" http://www.youtube.com/watch?v=2ms9Qugqihg .

Guð blessi ykkur

Kær kveðja/Rósa

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kærar þakkir fyrir að minna mig á..............

A (IP-tala skráð) 9.4.2009 kl. 18:25

2 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Takk fyrir frábæra færslu um það sem skiptir máli í lífinu

Guðrún Sæmundsdóttir, 9.4.2009 kl. 19:48

3 Smámynd: Linda

Hæ Rósa mín, já ég er heima, 5km ganga í dag og tími með móður minni var alveg þess virði að missa af samkomu, dýrðartímar með fjölskildu ertu stundum af skornum skammti.  Frábært framtak hjá þér að setja ritninguna inn, og þakka þér fyrir hrósið hjá mér vinkona, ég á það ekki skilið, Guð á dýrðina, ég gerði mitt besta að rita þetta. Takk samt það gott að fá hrós.

jám bloggið mitt er opið tímabundið,  rétt yfir Páskanna, annað hvísl ef svo má að orðið komast.  

Heyrumst á eftir.

Ég bið að Guð blessi þig og varðveiti.

Linda, 9.4.2009 kl. 21:17

4 Smámynd: Ragnheiður

Ég las hjá þér, fór í kvöldmessu og þetta var allt lesið þar, ég kom aftur og las hjá þér ....

Gleðilega páska Rósa mín

Ragnheiður , 9.4.2009 kl. 23:19

5 Smámynd: Jens Sigurjónsson

Hæ hæ Rósa mín.

Frábær færsla hjá þér alveg meiriháttar. Takk fyrir mig.

Guð blessi þig.

Jenni.

Jens Sigurjónsson, 9.4.2009 kl. 23:55

6 identicon

Sæl Rósa .

Já, það er gott hjá þér að koma með samantekt svo að þeir sem lesa vilja,geta lesið og upprifjað þekkingu sína eða meðtekið fræðslu sína  í fyrsta sinn.

Hafðu þökk fyrir.

Shalom/kveðja.

Kærleikskveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 10.4.2009 kl. 01:41

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gleðilega páska elsku Rósa mín og hafðu það gott.  Megi allir góðir vættir vaka yfir þér og vernda.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.4.2009 kl. 09:36

8 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gleðileg páska Elsku Rósa mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 10.4.2009 kl. 11:46

9 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir


Christian Glitter by www.christianglitter.com

Sæl og blessuð kæru bloggvinir og aðrir gestir

Takk fyrir innlitið og góðar óskir.

Megi algóður Guð blessa ykkur öll

GLEÐILEGA PÁSKA.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 10.4.2009 kl. 17:36

10 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

1. Gef mér drekka, Guð af þínum lindum, Gef mér Andans hvítasunnudag. Sól er yfir Zíonsfögru tindum. Send mér fylling þína - af ei drag! dýpra mig í duftið vil ég beygja. Drottinn, taktu allt mitt sjálflíf burt. Kveð ég allt við krossinn við ég þreyja. Kristur, gefðu vorskúr þinni jurt.

2. Þótt það kosti þrefalt fórnir meiri, Það skal látið, ef þú gefur mér Andans skírn og Andans gjafir fleiri. á altarið, Guð, ég legg mig hér, Fyrirheit þín, Faðir, eru gefin, Fyrnast geta aldrei loforð þín. hjartað trúir, hrekkur burtu efinn. Heilags Anda gjöfin er til mín.

3. Gef mér drekka, Guð, af þínum lindum, Gef mér Andans hvítasunnudag. Send mér ferskan sveip af þínum vindum. Svo ég öðlist fegri trúar brag. Brjóst mitt svellur blessun þinni móti, Barnið þráir drykk, er svalar því. Djörfung svo og dýpra líf ég hljóti, Drottinn, skír mig fylling þinni í. Höf. óþ. - Ásmundur Eiríksson

Rósa Aðalsteinsdóttir, 10.4.2009 kl. 17:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband