5.12.2008 | 18:39
Rósa gengin í barndóm
Halló, alló.
Á þriðjudaginn, var Enok Örn frændi minn og Hófi nágranni okkar að leika sér í rennibrautinni sem Enok Örn hafði búið til. Ég ákvað að renna og biðja Enok Örn að taka myndir. Hann vildi endilega taka myndband en það er hægt á myndavélinni minni.
Við ákváðum svo að gera eitthvað skemmtilegt með myndirnar og voru tvö myndbönd sett á YoyTube með hjálp Lindu bloggvinkonu minni og vinkonu.
Á meðan við vorum að læra var oft heilmikið fjör og fjörugar setningar flugu frá Vopnafirði yfir í Grafarvoginn og einnig til baka.
Nú ætlum við að setja myndböndin inná bloggið. Þið sjáið að þið eigið skrítinn bloggfélaga.
Góða skemmtun allir.
Kæra Linda. Takk fyrir hjálpina. Vona að þú hafir gaman af þessu líka.
Meginflokkur: Spaugilegt | Aukaflokkar: Lífstíll, Samgöngur, Vinir og fjölskylda | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Vopna-Rósa
Guðskerlingin - Rósa
Ofurfemínistinn - Rósa
Róza trúfrænka
Litla englabossa-fyrirmyndarfíflið hér þessi Rósa Aðalsteinsdóttir
Litla kerlingartwitt
Sveitapenni á hjara veraldar.
Muna: Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir.
Frekari upplýsingar fást með því að smella á mynd af höfundi.
Katrín Stefanía bróðurdóttir mín: http://isprinsessan.bloggar.is/
Lýdía Linnéa bróðurdóttir mín: http://lydialinnea.blogcentral.is/
Efni
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Kristin stjórnmálasamtök
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Rödd í óbyggð, kristilegt félag
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Bryndís Böðvarsdóttir
- Carl Jóhann Granz
- ibbets
- Einar Gíslason
- Elísabet Sigmarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Guðlaug H. Konráðsdóttir
- Guðlaugur Hermannsson
- Guðmundur Pálsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Gudrún Hauksdótttir
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Hafsteinn V Eðvarðsson
- Helena Leifsdóttir
- Helga Þórðardóttir
- Hörður Halldórsson
- Jens Sigurjónsson
- Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir
- Ragnar Birkir Bjarkarson
- Jón Valur Jensson
- Jón Ríkharðsson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Kristinn Ásgrímsson
- Linda
- Ólafur Jóhannsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Ragnheiður
- Sigríður Ásdís Karlsdóttir
- Sigríður Ágústa Þórólfsdóttir
- Sigurður Þórðarson
- Snorri Bergz
- Sólveig Þóra Jónsdóttir
- Stefán Bogi Sveinsson
- Sverrir Halldórsson
- Tómas
- Úlfar Þór Birgisson Aspar
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Þór Saari
- Þórarinn Þ Gíslason
- Þórólfur Ingvarsson
- Aðalbjörn Leifsson
- Adda Laufey
- Adda bloggar
- Aida.
- Ari Guðmar Hallgrímsson
- Árni þór
- Birgirsm
- Ásta Steingerður Geirsdóttir
- Benedikt Halldórsson
- Bjarki Tryggvason
- Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir
- Böðvar Ingi Guðbjartsson
- Dísa Dóra
- Eygló Hjaltalín
- Flower
- Guðrún Jónína Eiríksdóttir
- Guðrún Markúsdóttir
- Gladius
- G.Helga Ingadóttir
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Kristín Ketilsdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Halla Rut
- Heiða Þórðar
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Hilmar Sæberg Ásgeirsson
- hreinsamviska
- Hörður Finnbogason
- Jakob Kristinsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
- Jóhann Helgason
- Jón Steinar Ragnarsson
- jósep sigurðsson
- Kristbjörg Steinunn Gísladóttir
- Kristín Gunnarsdóttir
- lady
- leyla
- Magnús Paul Korntop
- Mofi
- Óskar Arnórsson
- Morgunblaðið
- Morgunstjarnan
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Ragnheiður Katla Laufdal
- sur
- Ragnar Freyr Ingvarsson
- Ruth
- Kafteinninn
- Sindri Guðjónsson
- Ragnheiður Arna Arnarsdóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Stefán Ingi Guðjónsson
- Steingrímur Jón Valgarðsson
- Styrmir Hafliðason
- Svala Erlendsdóttir
- Theodor Birgisson
- Theódór Norðkvist
- Unnur Arna Sigurðardóttir
- Þormar Helgi Ingimarsson
- Þórdís Ragnheiður Malmquist
- halkatla
- Brynja skordal
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Vefritid
- Kristinn Ingi Jónsson
- Óskar Sigurðsson
- Samtök Fullveldissinna
- Sigurjón Þórðarson
- dittan
- Guðmundur Ásgeirsson
- Durtur
- Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)
- Óskar Helgi Helgason
- Nonni
- Einar K. Árnason
- Bjarni Jónsson
- Einar Rúnar Sigurðsson
- Emil Hannes Valgeirsson
- Friðrik Agnar Ólafsson Schram
- Guðbjörn Jónsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Hrannar Baldursson
- Inga G Halldórsdóttir
- Jóhann Elíasson
- Jón Valur Jensson
- Jósef Smári Ásmundsson
- Júlíus Valsson
- Kjartan Eggertsson
- Kristinn Karl Brynjarsson
- Lífsréttur
- Óðinn Þórisson
- Páll Vilhjálmsson
- Rúnar Kristjánsson
- Rúnar Már Bragason
- Samtök um rannsóknir á ESB ...
- Steindór Sigursteinsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sverrir Stormsker
- Valdimar H Jóhannesson
- Viktor
- Þórhallur Heimisson
- Þráinn Jökull Elísson
- Ægir Óskar Hallgrímsson
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú ert flottust, og engin hefur hlátur eins og þú, nema kannski sá stutti sem er á upptökuvélinni.
bk.
Linda.
Linda, 5.12.2008 kl. 18:42
Funny Animations Glitter Pictures
ERUM VIÐ EKKI FLOTT???
Sæl Linda mín.
Kærar þakkir fyrir hjálpina. Enok Örn biður að heilsa þér.
Vertu Guði falin.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 5.12.2008 kl. 18:52
Flott þetta Rósa!
Guðsteinn Haukur Barkarson, 5.12.2008 kl. 19:16
Hheheeh þetta er alveg grand taka hjá stráknum,mikið hafið þið skemmt ykkur þarna.Já ég get síðan tekið undir með þér Rósa hún Linda okkar leynir á sér og kann ýmis trikk.
Úlfar Þór Birgisson Aspar, 5.12.2008 kl. 19:49
Æðislegt, guð hvað ég öfunda þig, frjáls eins og fuglinn flýgur niður brekkur eins og ekkert sé. Knús á þig og ljúfa helgi
Ásdís Sigurðardóttir, 5.12.2008 kl. 21:01
Það er nú ekki eins og þessi stelpa sé fimmtug á videoinu.... alveg eins og unglingur... hehehe
flott kona á ferðinni þarna
knús norður
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir, 5.12.2008 kl. 21:13
Hei Rósa mín flott hjá ykkur, hláturinn þinn og frænda þíns svo ynnilegur. Jarðskjálfti á Vopnafirði ha ha. Vertu svona áfram. Akkurat eins og ég hafði gert mér í hugarlund. Hress og einlæg. Sannkallaður engill. Guð veri með þér og þínum kæra vina. Kærleikskv. Sirrý.
Sigríður Ásdís Karlsdóttir, 5.12.2008 kl. 21:14
Sæl og blessuð.
Takk fyrir innlitið.
Guðsteinn minn, takk fyrir hólið. Þetta var virkilega gaman og ég skemmti mér oft vel þegar við Enok Örn vorum að tala við Lindu. Það var oft skrautlegt. Hann kunni alveg að skemmta okkur. Takk fyrir símtalið í dag. Ég er búin að hlægja og hlægja í allan dag út af þessu rauða slysi.
Úlli minn, Enok Örn er flottur. Kalla hann Örninn minn. Enok Örn og ég söfnuðum flöskum fyrir nokkrum árum og lögðu inn. Hann var að safna sér fyrir upptökuvél. Við notum hana næst þegar við tökum myndband. Ég ætlaði bara að biðja hann að taka myndir af þessu fjöri en úr varð nokkur myndbönd. Hann hefur tekið upp bæði í skólanum og eins uppí í kirkju. Hann er bara á tófta ári og lofar góðu. Linda hún er sko mjög flink og hún kenndi okkur að setja myndböndin inná youtube og þaðan inná bloggið.
Ásdís mín, já þarna gat ég flogið í áttina að Erninum mínum sem var að mana mig og mana en ég átti nú hugmyndina af þessu og við sjáum ekki eftir þessu ævintýri. Næst notum við upptökuvélina hans. Erum að hugsa um að gera kannski eitthvað skemmtilegt fyrir jól og þá auðvita að setja myndbandið á bloggið. Vona að þetta takist hjá okkur.
Hanna mín, ég er allavega ung í anda. Við Hófí vorum að renna okkur. Fjörutíu ára aldursmunur en sú eldri gaf hinni ekkert eftir. Við skellum okkur kannski saman í Bláfjöll einhvern tímann? Það er alveg tími til komin að rifja upp að fara á skíði.
Sirrý mín, við misstum okkur alveg í að hlæja. Ég rann svo hratt svo það voru læti í mér. Veit ekki alveg hvert hjartað ætlaði en sem betur fer slær það eðlilega núna. Þetta var æðislegt og nú hef ég sýnt ykkur hlið á mér sem er spaugileg. Ég ætla að reyna að vera ég sjálf. En oft þarf kjark en auðvita á ég ekkert að vera að hugsa um fólk sem vill hneykslast. Verð bara að ná út úr lífinu því besta.
Guð veri með ykkur nún um helgina og um alla framtíð.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 5.12.2008 kl. 22:06
Sæl Rósa.
Þetta var flott,en hvenær kemur FALLHLÍFARSTÖKKIÐ ég bíð spenntur
Kær kveðja/Shalom
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 5.12.2008 kl. 22:33
Þetta var skemmtilegt, það er gaman að skemmta sér. Þú veist að við yngjumst upp við að skemmta okkur og hlægja. Guð blessi þig í Jesú nafni Amen.
Aðalbjörn Leifsson, 5.12.2008 kl. 23:05
Sælir strákar og takk fyrir inntið.
Þórarinn minn, hörku flott en ég veit nú ekki með fallhlífarstökk. Held að hjarta mitt þoli það alls ekki.
Alli minn, við nutum þess að vera til, ég, Enok Örn og Hófí. Það var virkilega gaman hjá okkur.
Guð blessi ykkur og varðveiti.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 5.12.2008 kl. 23:21
Flott
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 6.12.2008 kl. 00:28
Þið eru alveg frábærar þú Rósa og Linda! Og takk fyrir "slide-showin" sem ég hef fengið frá þér Rósa. Þau eru virkilegt umhugsunarefni.
Til Rósu og Lindu: "Gleymið ekki gestrisninni því vegna hennar hafa sumir hýst engla án þess að vita" Hebr. 13,2.
Óskar Arnórsson, 6.12.2008 kl. 03:36
Þetta var frábært myndband af þér elsku Rósa, altaf svo gaman að heira þig hlægja. Guð blessi þig Rósa mín
Kristín Gunnarsdóttir, 6.12.2008 kl. 09:52
Get því miður ekki skoðað þetta þar sem það er dýrt með þessa nettengingu að skoða erlent niðurhal, en ég sem er að skríða á fertugsaldur myndi ekki slá hendinni á móti því að renna mér niður brekku væri tækifæri fyrir hendi. Ég renni mér hins vegar á vélsleða sem er líklega leikfang sem hæfir mínum aldri Það er hreinlega stórkostlegt að vera uppi á fjöllum svona í mars eða apríl þegar birtu er farið að njóta og það er gott veður. Þá finnur maður örlítið fyrir stórfengleika sköpunarverksins.
Flower, 6.12.2008 kl. 10:50
hæ Rósa mín gaman að sjá þessar undirtektir.
bk.
Linda
ps. Mér ætlast að takast að forfallast úr þessari bænagöngu, er skrítin í lungum og ekki nægilega frísk. Get ekki hugsað mér að fá þessu andstyggilegu kvef pest sem er að ganga.. En ég fór í fyrra og það var fyrsta gangan og ótrúlega gaman, ég vona að sem flestir fari og taki myndir.
Linda, 6.12.2008 kl. 11:17
Innlitskvitt og kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 6.12.2008 kl. 23:19
Sæl og blessuð
Takk fyrir innlitið
Í dag fór ég í Bænagöngu og hlustaði á Lindina í leiðinni. Ég lagði af stað áður en útsendingin hófst við Hallgrímskirkju. Þar voru margir mættir til að fara í Bænagöngu niður Skólavörðustíginn, Bankastrætið, Lækjargötu og á Austurvöll. Þar var beðið fyrir landi og þjóð og ýmsum bænarefnum sem virkilega þarf að biðja markvisst fyrir á næstunni.
Á meðan ég var að hlusta á Lindina fór ég uppá Bænaklettinn og þar hafði ég bænastund. Eftir Bænagönguna fór ég uppí kirkju og var aðeins að hjálpa til við undirbúning fyrir söngsamkomu í kvöld.
Við fengum nefnilega heimsókn frá Akureyrir og vorum með söngsamkomu. Samkoman var frábær og svo fengum við okkur heitt súkkulaði, smákökur og konfekt. Við leggjum ekkert af í dag.
Það er komin hláka en rennibrautin er ennþá uppistandandi þannig að það væri hægt að renna sér en hún er ekki eins mjúk og það gætu komið marblettir.
Birna mín, takk fyrir innlitið.
Óskar minn, ekki veitir af að minna á að við eigum að vera gestrisin. Hér hafa margir fengið að gista í gegnum tíðina og vonandi eigum við eftir að hýsa fleiri. Vonandi hafa englar gist hér. Við Vopnfirðingar værum ánægð að fá slíka heimsókn.
Kristín mín, þetta var svo skemmtilegt og ég hló og hló. Enok Örn var svo fyndinn við upptökurnar. Var að mana mig, þú þorir, þú þorir sagði hann. Þá var ég bara að setja upp gleraugun til að sjá hvernig brautin væri því það er hlykkur á henni. Eins gott að passa að renna ekki út úr brautinni. Enok Örn var mjög ánægður með brautina að hún hafði ekkert skemmst þó ég væri búin að renna. Brautin er greinilega sterklega gerð sagði hann.
Flower mín, ég get ímyndað mér að það sé dásamlegt að fara á vélsleða uppá fjöll og njóta fegurðarinnar.
Linda mín, leit að heyra að þú sért komin með einhverja pest. En og aftur, takk fyrir þinn hluta af þessu.
Ruslana mín, takk fyrir það. Hef gaman af sprelli og þá er stutt í hláturinn.
Megi almáttugur Guð vera með ykkur öllum.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 6.12.2008 kl. 23:32
Christian Glitter by www.christianglitter.com
Rósa Aðalsteinsdóttir, 6.12.2008 kl. 23:38
Glitter Good Night Graphics
Rósa Aðalsteinsdóttir, 6.12.2008 kl. 23:41
Hehehehe.....þetta voru flott myndbönd!!!! Gaman þegar fólk er svona frjálst og varðveitir barnið í sér!!!!
Knús á þig Rósa frænka og frændfólkið mitt þarna í snjónum!!!
Ása (IP-tala skráð) 7.12.2008 kl. 11:32
Sælar stelpur
Linda mín, takk fyrir innlitið.
Ása mín, það er yndislegt þegar maður er frjáls. Ég er svo þakklát fyrir þá sönnu gleði sem ég eignaðist þegar ég gaf Jesú hjartað mitt þegar ég var 13 ára.
"En Jesús sagði: "Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi, því að slíkra er himnaríki." Matt. 19:14.
"Blindir og haltir komu til hans í helgidóminum, og hann læknaði þá. Æðstu prestarnir og fræðimennirnir sáu dásemdarverkin, sem hann gjörði, og heyrðu börnin hrópa í helgidóminum: "Hósanna syni Davíðs!" Þeir urðu gramir við og sögðu við hann: "Heyrir þú, hvað þau segja?" Jesús svaraði þeim: "Já, hafið þér aldrei lesið þetta: ,Af barna munni og brjóstmylkinga býrðu þér lof." Matt. 21. 14.-16.
Guð blessi ykkur og varðveiti.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 7.12.2008 kl. 13:11
Mæli með þér í atvinnumennsku í þessari grein.
Kristinn Ásgrímsson, 7.12.2008 kl. 20:34
Heyrðu stelpa flotta fína.
Nú ætlar Ruv að skera niður innlent efni...ég sé klárlega að hér er á ferðinni ný stjarna sem hlær með hjartanu og lætur vaða. Reglulega skemmtilegt en stutt myndband.
Rósa þú ert frábær stelpa.
Hvað næst?
Vinkona þín í Garðabænum.
Helena
Helena Leifsdóttir, 7.12.2008 kl. 23:24
Ertu með Firefox Erlingur?
Óskar Arnórsson, 8.12.2008 kl. 02:18
Svona á að skemmta sér, þetta er lífið
Ég vaknaði í morgun og leit út um gluggann minn og allt á kafi í snjó í firðinum, nú er bara að finna brekku, vá hvað það er orðið jólalegt!
bkv og knúsRósa mín.
Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir, 8.12.2008 kl. 11:32
Gaman að sjá þig á myndbandinu Rósa mín og ég skellihló. Hafðu það gott elskan.
Kristín Katla Árnadóttir, 8.12.2008 kl. 11:58
Sæl og blessuð og takk fyrir innlitið.
Kiddi minn, verð að hugsa þetta með atvinnumennskuna.
Helena mín, slæmt að RUV ætli að sker niðurinnlent efni. Við sem vorum að hugsa um að fara á samningafund hjá RUV!! Næst verðum við með nýtt forriti og þá klippum við saman öll myndböndin. Kannski gerðum við jólamyndband. Það er í nefnd!! Flott að vera kölluð stelpa!!!
Erlingur, ef ég er inná Firefoox og ætla að kíkja á myndbönd þá get ég það ekki. En ég get horft á öll myndbönd á internet explorer.
Óskar minn, takk fyrir hjálpina.
Bryndís mín, við verðum að skemmta okkur. Við kunnum það nú þegar við erum saman. Þetta var virkilega hressandi. Enok Örn man ekki þegar ég renndi mér fyrir nokkrum árum í brautinni sem þeir feðgar höfðu búið til svo þetta varð ennþá meira spennandi fyrir hann. Að sjá Rósu frænku sína renna niður brautina var alveg meiriháttar. Þú heyrir hvað hann skemmtir sér vel. Hann var alveg í essinu sínu. Hann er svo mikill sólargeisli fyrir mig. Ég er svo þakklát Guði að eiga hann.
Katla mín, gaman af þessu. Ég bara mátt til að sýna ykkur hverslags bloggfélaga þið eigið í raun. Bloggfélaga sem hef gaman að allskyns uppátækjum og bulli.
Megi almátugur Guð blessa ykkur öll.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 8.12.2008 kl. 13:04
Þú ert flottust Rósa. Gaman að sjá myndir frá Vopnafirði hálf öfunda ykkur af snjónum bara drulla hér í borginni.
Kveðja Davíð.
Davíð (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 18:32
FRÁBÆRT HJÁ ÞÉR RÓSA . ÞÚ RENNDIR ÞÉR INN Í BARNDÓMINN MEÐ MIKILLI LIST!
Ég var á Vopnafirði í tvö sumur á síldarárunum þá var ég 13 og 14.ára þega faðir minn var að vinna við að setja upp síldaverksmiðjuna þar og við bjuggum fyrsta árið að Vogum og annað árið ég held að húsið hafi heitið Baldursheimar þetta voru mér ógleymanleg sumur og ég saltaði og saltaði!
Kristín Ketilsdóttir, 9.12.2008 kl. 20:50
Sæl og blessuð og takk fyrir innlitið.
Davíð minn, takk fyrir það. Þetta var svo gaman. Bryndís var nú að segja mér að það hafi komið snór í gærmorgunn til ykkar en kannski búin að koma þíða og þá skemmist allt. Leiðinlegir þessir umhleypingar. Það kom hláka hér á laugardaginn og brautin hans Enoks er ekki eins góð eins og þegar ég var að renna mér en vonandi kemur meiri snjór og þá er hægt að renna sér aftur.
Kristín mín, gaman af þessu. Gaman að heyra að þú hafir átt heima á Vopnafirði í denn. Ég prufaði aðeins að salta líka en ég var nú ekki há í loftinu og yfirleitt saltaði ég í eina tunnu en mest tvær. Þá voru þær hæðstu með tuttugu tunnur þannig að ég hef kannski verið í fimm tíma törn þarna og bara sjö ára. Ég skil ekkert í því að við krakkarnir skildum ekki fara á eftir síldinni ofaní tunnuna þegar við vorum að raða fyrstu lögunum. Ég man að ég lá á tunnunni og svo teygði ég mig eins og ég gat ofaní botninn með síldina. Þetta var ekki beint létt en svaka spennandi fyrir okkur.
Guð blessi ykkur Davíð og Kristín.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 9.12.2008 kl. 22:27
Góðan daginn elsku vinkona og ljúfar kveðjur:):)
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 11.12.2008 kl. 10:02
Sæl Linda mín.
Takk fyrir innlitið og góðar kveðjur.
Vertu Guði falin.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 12.12.2008 kl. 15:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.